21.9.06

vika 4 hálfnuð

Mig langar í NAMMI........
er búin að vera í voðalegum nammi fíling þessa vikuna að það er alveg pínlegt - samt fékk ég mér bragðaref á laugardaginn og fékk alveg nóg af honum....úff - held að ég verði að hafa tvo nammi daga....hihihih - veit ekki hvort ég kæmist langt á því en laugardagurinn nálgast ófluga - bara 2 dagar eftir þá fer ég út í sjoppu að kaupa mér súkkulaði.

Annars gleymdi ég að segja frá því að mælingin eftir tvær vikur kom alveg ágætlega út - 2 prósent af fitu farin á tveimur vikum - held samt að það verði ekki svo gott næsta mánudag þegar ég þarf aftur að mæla mig en vonandi sér maður einhvern árangur.
Úff - sem betur fer þá er ég ekki að keppa í fitness eða einhverju álíka því ég gæti aldrei, aldrei verið svona leiðinleg við sjálfan mig og á ég þá við matarlega séð - gæti alveg æft eins og þau en matinn þeirra vil ég ekki.

Og já prótein drykkjum mæli ég ekki með - ekki nema að maður vilji vera með stanslausa ógleði, magakrampa og drullu. USss - segi nú bara greiji vaxtarræktartröllin. Svo datt mér í hug að þetta er örugglega gert svona til þess að maður borði minna en verst að maður getur ekki hreyft sig heldur. Þannig að éta bara fisk og kjúlla og mikið af því :)

Nú fer verknámið að nálgast og byrja ég í Keflavík og verð þar í 2 vikur og svo 3 vikur á Lansanum. Finnst ágætt að fara í verknám - breyta um umhverfi í smá tíma en alltaf gott að koma heim aftur. Svo fer ég aftur suður í 5 vikna verknám eftir áramót þannig að þið sem eruð þarna í borg óttans eigið vonandi eftir að sjá aðeins meira af mér í vetur ;)

3 Comments:

At 4:32 PM, Blogger Harpa said...

úú jéé! Það verður gaman að fá þig suður :) Tökum eitt gamalt haust 2004 djamm og sonna. Missum nokkra hundraðkalla svo Andrea geti komið með, gert grín og ég misst mig yfir því! "Það gæti hafa verið hundraðkall!!!!!!!"

Þú ert að standa þig svo ótrúlega vel! Jiminn góður hvað ég væri til að vera í svona hressingarátaki. Annars styttist held ég óðfluga í flatan frönskurass eins og velflestar vænar amerískar konur eru með.

Áfram Karó!

 
At 2:31 PM, Blogger Karolina said...

já - verðum með fulla vasa af hundraköllum, borgum á barnum með hundrað köllum og völdum drama ef einhver villist frá okkur... snilld :)

já já - voða dugleg - gæti samt verið duglegri....enn gott en sem komið er....

 
At 7:23 PM, Anonymous Ragna Fanney said...

Ég er orðin frekar léleg að fylgjast með í blogheiminum en ertu í alvöru að koma suður?? Þú verður að heyra í mér þegar þú kemur. Ég er akkúrat búin að hugsa mikið um þig í dag. Var nefnilega að hlusta á jólalag.. manstu þarna "þú og ég og jól ein í alfyrsta sinn..." veit það er bannað en varð því ég missti af jólunum síðast.

 

Sendu inn athugasemd

<< Home