5.9.06

Vika 2

Jæja - þá er maður búin með eina viku og vika tvö að byrja. Að vísu var seinasta vika ekkert erfið matarlega séð en úfff....harðsperrur dauðans - ég vissi ekki að hægt væri að fá svona sársaukafullar harðsperrur - en ætli það skili sér ekki í meiri vöðvum og stinnleika ;)

Núna er meiri brennslu vika heldur en í seinustu viku og þannig að mín verður brjáluð á hlaupabrettinu eða kýlandi eins og mófó í loftið í compati.

Engar stórar breytingar orðnar hjá mér nema að ég labbaði hálf hölt seinustu viku vegna harðsperra sem er sem betur fer nokkurn vegin farið. Þá er í tilbúin í næsta skammt af harðsperrum ;)

Þar sem edrúmennska fylgir svona átaki - þ.e. ef maður ætlar að gera þetta almennilega - lætur maður það ekkert stoppa sig á því að fara á djammið - dansa af sér rassinn og pungsvitna og vakna svo eldhress næsta morgun - og hef ég heyrt að endrúmennsku djamm mun fullkomnast næsta sumar þegar reykingar verða bannaðar inn á skemmtistöðum....eða var það bara veitingarhúsum - man það ekki alveg. Hvort sem er þá er það tær snilld :)

Þar til næst....koma svo - púslinn upp í 197....!!!!

2 Comments:

At 1:14 PM, Anonymous Soffía said...

Eins gott þú verðir dugleg í ræktinni og verðir í vangefnu formi á næsta Íslandsmeistaramóti ;)

 
At 4:16 PM, Blogger Karolina said...

Það er stefnan...... svo eftir áramót verða bara tækniæfingar hjá mér með kylfun til að fullkomna þetta ;)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home