28.8.06

Ræktar blogg nr 1

Jæja - ég hef ákveðið að ég muni breyta þessu í leiðinlegt ræktarblogg og þið ráðið alveg hvort þið viljið lesa vælið í mér hér....

Ég er nefnilega að fara í 4 mánaða vöðvaaukandi og fituminnkandi átak og mun Berglind stóra systir vera bossinn yfir þessu átaki. Í dag er formlega minn fyrsti dagur í þessu átaki og vorum við að taka "fyrir" myndina - gekk pínu brösulega þar sem mér fannst þetta svo fyndið að ég gat ekki verið með fýlusvip ;) en tókst á endanum - get nú ekki sagt að mig finnist eitthvað fallegt að horfa á þá mynd - vonandi mun hún eitthvað skána þegar á líður......
Svo vorum við líka að taka mál og ákváðum við að vera ekkert að strekkja á málbandinu núna en það verður strekt í lok átaks ..... maður verður að beyta smá blekkingu í þessu - svona fyrir sálartetrið og líka að skýrslan komi betur út fyrir hana Berglindi og kennarinn hennar verið ánægðari með hana.

Annars erum við að fara í ræktina á eftir þar sem hún mun kenna mér á lyftingarprógrammið - hún kemur með mér í hvert skipti held ég fyrstu tvær vikurnar þar sem annað er tekið fyrir í viku nr 2 en svo byrjar maður aftur upp á nýtt. Eftir þetta mun hún bara koma með mér einu sinni í viku svona til að halda mér við efnið og verð ég þá bara inn á milli taka á honum stóra mínum.

Sem betur fer eru ekki miklar breytingar á mataræðinu fyrstu 3 vikurnar því þá einbeiti ég mér bara að því að byggja upp múskla. Svo eftir það verður bara harkan sex ;)

Hérna hafið þið það - ég ætla að reyna að skrifa svona vikulega og segja frá hvernig mér gangi - alltaf að reyna að finna fleiri leiðir til að auka pressuna á mér - ekki það að Berglind pressi ekki nóg og hvað þá ég - þetta verður bara smá aukning því ég gæti trúað að ég þyrfti þessa auka pressu.

þar til næst ..... ekkert súkkulaði

2 Comments:

At 2:16 PM, Anonymous Þóra Elísabet said...

Geturu ekki sent mér svona prógramm? Þyrfti endilega að fara að bæta á mig músklum;)

 
At 10:45 PM, Blogger Karolina said...

já - blessuðu músklarnir, þeir eru hentugir til síns brúgs - og prógramm já... ekki kann ég að gera svoleiðis en er það ekki bara lyfta 3 í vikur - efri búkur - neðri búkur - efri búkur og ca 8 æfingar hvert skipti.... mitt er svona í grófum dráttum (hihihih - dónahausinn ég fór af stað:)

 

Sendu inn athugasemd

<< Home