21.7.06

Einar - 30 ára í dag :)

Til hamingju með afmælið brósi minn - grillaðu nú frá þér allt vit ;)

úff - langt síðan maður hefur skrifað eitthvað hér....

Hef bara verið að vinna eins og mófó síðan ég kom frá Kanada - þar sem mikil mannekla er í gangi hérna (á hvaða sjúkrahúsi er hún ekki) - en þar sem maður fær gjörsamlega allan andskotan hingað inn þá get ég ekki sagt að mér leiðist. Hér er lyflækningardeild, handlækningardeild, gjörgæsla, fæðingardeild og skurðstofa á næstuhæð sem ég kem reyndar ekki nálægt en við fáum sjúklinga þaðan. Get nú ekki neitað að það er pínulítið freistandi að koma hingað aftur næsta sumar og vinna þá sem hjúkka. Maður lærir örugglega massa mikið af því en það verður örugglega ekki auðvelt.

Annars er ég að fara norður núna á eftir - þegar ég er búin að leggja mig aðeins - og ætlum við að slá upp í tjaldpartý einhversstaðar nálægt Akureyri og halda stórafmælið hátíðlegt og bjóða stóru systur og co. velkomna aftur til landsins :)

Annars verð ég að hætta - er búin að vera alltof lengi að skrifa þetta og orsakast það af mikilli þreytu og heilaleysis......
....þar til næst ..... sem verður vonandi fyrr heldur en seinast.....síja

6 Comments:

At 10:20 AM, Anonymous Berglind said...

je dúdda mía kona...ég var búin að gefa upp alla von um að þú bloggaðir einhverntíman aftur

 
At 4:06 PM, Blogger Karolina said...

heheh... það fer nú eitthvað lítið fyrir því - en hvað með þig - eitthvað að gerast á þinni síðu ha???

 
At 9:33 AM, Blogger Golsa - Kristín Arna said...

Hæ sætelíus, hvar ertu að vinna gæska mín? knús og kveðjur, hvolfarinn

 
At 5:23 PM, Blogger Karolina said...

ég er að vinna á fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað :) og vá - hvað það er langt síðan maður hefur heyrt í þér - skilaðu kveðju til "Kiwiana" - ég á eftir að fara til nýja sjálands þegar ég klára að fara hringinn í Ástralíu ;)

 
At 12:30 PM, Anonymous baddy said...

hæ skvís, nú fer að líða að því að skólinn byrji aftur....hvenær kemuru norður?

 
At 1:50 PM, Blogger Karolina said...

seinasta vaktin mín er 26. ágúst- þannig að ég kem annað hvort um kvöldið 26 eða daginn eftir....fer eftir hvort að fjölskyldumeðlimir ælti að fylgja mér norður ;) en þú? - eða ertu komin norður?

 

Sendu inn athugasemd

<< Home