Dagur tvö sem smiður.....
Já - held að ég geti sagt að ég finni fyrir fótunum á mér núna. Þar sem ég er búin að sitja á rassinum síðast liðna 2 mánuði þá eru þetta dálítið mikil viðbrigði að standa í fæturnar í 10 tíma á dag. Þreytan er svo mikil að ég nenni ekki á klósettið - sófinn er minn aðal staður þetta kvöldið.
Annars er ég búin að bonda vel og mikið við hann Merkúr. Merkúr er risastór, tölvustýrður bor með svona arma, pedala, takka og mörg hin ýmsu skemmtileg heit. Höfum við tvö veriða að bora eins og brjálæðingar síðan á mánudaginn og mun samband okkar líklegast halda áfram út vikuna - ef marka má þá stafla af allskonar plötum og stykkjum sem hafa hrúgast í kringum okkur. En ekki taka því sem að við séum hægfara - alls ekki - var okkur meira að segja hrósað fyrir hröð handbrögð í vinnunni í dag :)
Veislan hennar Valdísar heppnaðist alveg hreint ljómandi - allaveganna skemmti ég mér mjög vel. En það mættu kannski ekki alveg eins margir og við bjuggumst við og gerir það að verkum að við eigu FULLT af bakkelsi hér, það verður örugglega ekki eldað í nokkrar vikur - svo mikill er afgangurinn.
Komst svo að því að Egilsstaðir eru ekki að gera góða hluti hérna. Allaveganna ekki á laugardaginn. Var í þó nokkru djammstuði um kvöldið og ætlaði ég ekki að láta ofurþreytuna mína stöðva mig - en þar sem búið er að loka Kaffi KHB, Valaskjálf leyfir engin skemmtanahöld og einkateiti var á Hetjunni ákvað ég að fara bara upp í rúm að sofa.
Núna ætla ég að fara skella mér út í bílskúr að hjálpa pabba mínum að laga litlu riðblettina sem eru eitthvað að sniglast á bílnum mínum..... heyrumst seinna.


4 Comments:
Hei! Skítt með hetjuna, við vorum bara töff með einkapartí á msn;) Skál fyrir rauðvíninu *slurp*
hihihih - já þokkalega... teitið okkar var sko best í heimi... áfram partý msn :)
ó mæ Karólína. Kannski þetta verði betra á Neskaupstað? En mér finnst að þú ættir nú að taka því rólega því eins og þú veist eru bara ákv. karlmenn sem þú mátt umgangast og svona skv. Hlyn. Verður að stunda þína heimavinnu fyrst til að vita hverja má umgangast og hverja skal forðast.
kv
Berglind (er BARA AÐ HUGSA UM ÞINN HAG)
Já - ég var búin að heyra af þessum kröfum sem Hlynur setti upp. Ég skal gera mitt best til þess að uppfylla þær en ég get ekki lofað neinu. Ef það kemur nú einhver annar - mjög heillandi en ekki með réttan bakgrunn þá verður mjög erfitt að hafna honum. En allt fyrir ykkur elskurnar mína ..... og já auðvitað fyrir minn hag einnig ;)
Sendu inn athugasemd
<< Home