Bara fyrir þig Berglind mín!!
Þar sem stóra systir er að verða sí-net-tengi laus þá er víst við hæfi að uppfæra hana og auðvitað þið hin sem kíkið hérna inn (ef það eru einhverjir) þar sem langar samræður okkar systra á msninu heyra þá sögunni til.
En þar sem ég er í prófatíð og nenni ekki að skrifa langt blogg ætla ég að hafa þetta í svona punkta stíl:
- er að fara í 3 próf - fyrsta á fimmtudag (meinó), næsta á þriðjudag (lyfjó) og seinasta á fimmtudag (hjúkó) og er ég þá komin í sumarfrí :)
- ég er að fá nasaþefinn af því hvernig er að vera á bíl á Akureyri - og er það einungis bumbusafnandi þar sem göngutúrarnir/hjólatúrarnir milli skólans og heimilsins er eina hreifingin mín í prófatíðinni - held ég leggi bílunum í smá tíma.
- er að reyna að ákveða hvað ég eigi að gera í þessu stutta sumarfrí - þ.e. frá 11 mai og þar til ég fer að vinna - 29. mai. Var að spá í að troða mér á einhvern sveitabæ og fá að fara í sauðburð - kannski að reyna að suða út svona eina og eina vakt á sjúkrahúsinu - fara í stinningar átak ;)
- já - ég mun vinna niður á Neskaupstað í sumar á fjórðungssjúkrahúsinu og mun ég bú hjá honum brósa mínum - Einari og kisunni hans. Eina sem mig kvíður fyrir að þurfa að búa þar er þessi helv... brennslu fíla. Var ekki hægt að troða brennslunni eitthvað lengra í burtu OJOJOJOJ
- Svo í júní er stefnan tekin á Canada - baby - með mor, Einari og Valdísi. Það verður massa mikið stuð og hlakka ótrúlega mikið til :)
Jæja - best að snúa sér aftur að bókunum - þetta er komið nóg. Og já Gleðilegt sumar allir :)


2 Comments:
je gella...rétt mánuður í að þið komið til okkar...glimrandi :-)
Já, og til hamingju með hvíta vagninn...nú bara mála á hann eldingu
Heyrumst þegar þú kemur heim
adíós
Berglind
já - ég var einmitt að spá í að fá mér svona bleika eldingu - fyrst að ég keypti ekki bleika poloinn..... svo kannski dökkar rúður og nýjar flegur ;)
Sendu inn athugasemd
<< Home