Ég hata FLENSU :(
Jú jú - flensan ákvað að þetta árið skyldi ég ekki sleppa og hefur ákveðið að ég skuli tak út öll þau skipti sem ég hef sloppið fyrir horn síðast liðin ár og dembir fjórföldum skammti á mig. Hef ekki verið svona mikið lasin síðan í barnaskóla (að mig minnir) og það er sko langt síðan. Ég vona einnig að þessi flensu faraldur hætti með mér því ég vil ekki að neinn annar þurfi að liggja í rúminu í viku í hálfmyrkviðu herbergi - bryðjandi verkjatöflur á 4 tímafresti - óskandi þess að mamma gæti verið hjá manni með krækiberjasúpu og kærleik...............uuuuu mig langar heim!!!!
En annars fann ég svona lista sem mig langaði svo að gera - bara svona til að stytta manni aðeins stundirnar.....
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika (en enga svona rosa-frægra-hljómsveitar-tónleika, meira frekar Stjórnin, Jagúr o.fl. - tónleikar er alltaf seinasti liðurinn í fjárhagsáætlunni)
(x) tekið verkjalyf en eiginlega aldrei (en þessa stundin lifi ég á þeim elskum)
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna ( allveg fullt og alltaf - vil bara hafa alla í kringum mig - alltaf)
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð ( svona með hjálp mömmu ;))
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum ( gerði það seinast um 18 aldurin þegar ég og stelpa sem ég vann með ákveðum að við skyldum finna börnin í okkur sjálfum aftur, vorum í gulumpollagöllum og allt :)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik (við vinkonurnar bjuggum til spil sem krafðist þess að maður svindlaði - þannig já)
(x) verið einmanna
(x) sofnað í vinnunni/skólanum (einu sinni í rapporti í vinnunni eftir mjög svo djamm góða nótt ;)
( ) notað falsað skilríki (Nei - persónutöfrarnir dugðu oftast ;)
(x) horft á sólarlagið
( ) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni (bæði hér heim og í mið Ástralíu og svaf bara nokkuð vel takk)
(x) verið kitluð/kitlaður (já og það þarf lítið að koma til að ég fari að sparka frá mér - kitlar ofur mikið)
(x) verið rænd/rændur (uppáhaldsgallabuxunum mínum var rænt úti )
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru (bara öllu saman)
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi (ekki viljandi samt)
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni (það er ókosturinn við það að vera einstæða vinkonan)
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi (tvenn sem einkennir okkur systur - bumbugenið og ofur-ísát... humm ætli það sem samhengi þarna á milli)
(x) fengið deja vu (það kemur fyrir)
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út (alltaf þegar ég er nývöknuð - or not)
(x) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (kemur í köstum og þá helst rétt fyrir próf)
(X) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur (örugglega en ekkert alvarlegt samt)
(x) synt í sjónum (ekki hér á landi en í Danmörku og Ástralíu)
(x) fundist þú vera að deyja (á það til með að vera einstaklega yfirveguð manneskja á ögurstundum)
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófaleik
(x) litað nýlega með trélitum
(x) sungið í kariókí (já oft oft - við systurnar áttum karíókí gærjur :)
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (jú jú - þurft að tína klinkið saman og telja - það hefur gerst)
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki? ( alltof oft)
(x) hringt símahrekk (jú jú - það hefur gerst)
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér?
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
( ) skrifað bréf til jólasveinsins. (Gerðist ekki vegna þess að stór systir mín eyðilagði Jólasveina trú mín á ungaldri á náði aldrei því stigi að vilja skrifa bréf til "Jólasveinsins")
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni ( ein kennslutímin úti í Danmörku fól í sér að við áttum að búa til þrjár mismunandi báltegundir sem voru ætluð til mismunandi verka á ströndinni í roki og rigningu og okkur tókst það.... :)
(x) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta... og suckaði feitt
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) fariðí fallhlífastökk...
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig.
( ) klesst bíl vinar/vinkonu-
( ) stolið bíl
( ) verið ástfangin/n
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu - lífið er eins og konfektkassi
( ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum (er mjög svo á móti ofbeldi en einu sinnu hefur þurft að toga mig í burtu)
(x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu (ekki alvarlegt - bara hvít lýgi hér og þar ;)
(x) skrópað í skólanum
(x) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada (er að fara núna í sumar í 2 vikur - jibbý)
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (komst að því um dagin að ég kann ekkert á skíði)
jæja - farin að rotna örlítið meira... síjú


6 Comments:
ha hefuru ekki kveikt í þér viljandi..hmm skrýtið..doldið heimskuleg spurning..
Þetta var Emil..
hehehe ..... hey hvað er þetta - kveiki alltaf í mér á miðvikudögum milli kl 18 og 20 - smá ljósa show fyrir nágranana ;)
úff - var að lesa yfir þetta blogg aftur - allt eitthvað undarlega skrifað og vitlaust - verðið að afsaka, þetta er flensunni að kenna!!!
dísús litla mín...þetta er hrikalega langur listi maður. Greinilegt að þú veist ekkert hvað þú átt að gera :-)
Je minn...ef einhver er ekki að standa sig í blogginu....hvar ertu kona???
Sendu inn athugasemd
<< Home